Cove Advisers

Modula 30

Þetta er fyrsta spænska skatteyðublaðið sem þú fyllir út við komu til vinnu á Spáni. Þar skráir þú fyrirætlanir þínar um að greiða skatt sem annað hvort heimilisfastur eða erlendur aðili. Þetta verður að gerast innan 30 daga frá komu þinni.

Modula 210

Þetta eyðublað er margþætt og ætlað til notkunar fyrir erlenda aðila sem eiga að greiða skatt á Spáni af tekjustreymi eins og leigutekjum, söluhagnaði af eignum og reiknaðar tekjum. Það er aðeins hægt að klára formið á netinu. Skilafrestur er til 31. desember eftir lok hvers skattsárs. Til dæmis, ef þú keyptir eign í júlí 2022, áttu að skila framtalinu fyrir 31. desember 2023.

Dæmi: Ef þú ert evrópskur ríkisborgari, átt fasteign á Spáni búsettur erlendis og þú leigir hana ekki út þarftu að gefa upp verðmæti eignar þinnar á þessu eyðublaði á hverju ári og greiða skatta í samræmi við það. Hvað kostar þessi skattur og hvernig er hægt að reikna hann út?

Fyrst þarftu að finna IBI reikninginn þinn (Fasteignaskattur sveitarfélags). Á þeim seðli finnur þú „Valor Catastral“. Athugið! Ekki „Valor Catastral Suelo“ sem er verðmæti lóðarinnar.

Eigendur sem eru ESB ríkisborgarar greiða 19% skatt en eigendur utan ESB (t.d. breskir ríkisborgarar sem búa utan ESB, á Íslandi eða Noregi) greiða hærra skatthlutfallið 24%.

Til að sjá hversu hár tekjuskatturinn er skulum við nota dæmi um eign sem metin er á €100.000 x 1.1% er €1.100. Af €1.100 er því greiddur skattur árlega samanber eftirfarand:

Íbúi í ESB greiðir skatthlutfallið 19% af útreiknuðum €1.100. Það jafngildir €209 á ári.
Í samanburði við íbúa utan ESB sem mun greiða 24%. Það jafngildir 264 evrum á ári.

Meira en helmingur erlendra fasteignaeigenda kannast ekki við þennan skatt. Það er ein af ástæðunum fyrir því að kaupandi þarf að halda eftir og greiða 3% af söluverði til spænskra skattyfirvalda ef seljandinn er erlendur aðili. Þetta ákvæði er vegna gjaldfallna skatta en er ekki skattur.

Við getum hjálpað

Við getum hjálpað þér í gegnum skrifræði spænska skattkerfisins. Dyggir ráðgjafar okkar aðstoða þig við hvert skref.

Deila á:

is_ISÍslenska